jæja mundi passwordið núna
Afi dó núna 5. janúar og var jarðarförin á laugardaginn. ég man vel eftir því þegar ég gat alltaf farið til afa og beðið hann að lesa uppúr árnabókunum fyrir mig þegar ég var strákur, eins og báðir bræður mínir gerðu á undan mér, einnig man ég eftir þegar afi bað mig um að keyra fyrir sig inní hvamm þar sem við erum með rollurnar og skemmtum við okkur vel á leiðinni. Afi var besti maður sem ég þekkti og ég geri enn. Jarðarförin var mjög falleg en ég grét alveg rosalega. Mamma grét líka en ég tók í hendina á henni og strauk hana alla jarðarförina. ég sakna afa en honum líður betur núna, þar sem hann er örugglega að skjóta tófu með halla sem dó rétt fyrir jól. hehe hann skemmtir sér vel.
jæja allavega, þá óska ég öllum gleðilegs árs og takk fyrir það gamla.
Einar out.........






